Milljónir Sýrlendinga hjálparþurfi 8. júní 2013 07:00 Ein og hálf milljón manna hefur nú þegar leitað hælis í Jórdaníu, Líbanon, Tyrklandi, Egyptalandi og Írak. Nordicphotos/AFP
Fjöldi sýrlenskra flóttamanna í nágrannalöndum Sýrllands gæti farið upp í þrjár og hálfa milljón í lok ársins. Sameinuðu þjóðirnar hafa gefið út alþjóðlegt hjálparkall vegna ástandsins í Sýrlandi. SÞ biðla til ríkja um að gefa rúmlega 600 milljarða íslenskra króna til að létta þjáningar milljóna manna, bæði innanlands og utan, sem hafa þurft að glíma við afleiðingar átakanna undanfarin tvö ár. Yfirmaður flóttamannahjálpar SÞ, Antonio Guterres, sagði á blaðamannafundi í Genf fyrir skömmu að rúmlega ein og hálf milljón manna hafi nú þegar leitað hælis í Jórdaníu, Líbanon, Tyrklandi, Írak og Egyptalandi. Hann sagði um sjö þúsund manns fara yfir landamærin á degi hverjum. „Ef átökin stöðvast ekki getum við átt von á gríðarlegri fólksfjölgun í Mið-Austurlöndum sem innviðir samfélagsins standa ekki undir,“ sagði Guterres og benti á að Líbanon og Jórdanía hefðu borið þungar fjárhagslegar byrðar vegna móttöku um hálfrar milljónar flóttamanna hvor. Guterres sagði upphæðina blikna í samanburði við það sem ríki á Vesturlöndum hefðu eytt í björgunaraðgerðir bankanna og sambærilegt við það sem Bandaríkjamenn eyddu í ís á 32 dögum. Valerie Amos, helsti ráðgjafi SÞ í mannúðarmálum, segir upphæðina vissulega háa en á bak við hana sé mannlegur harmleikur. Hún bendir á að um 80 þúsund manns hafi látið lífið síðan byltingin gegn Bashar Assad, forseta Sýrlands, hófst í mars 2011. Hún segir jafnframt að átökin hafi fært uppbyggingu Sýrlands aftur um tvo áratugi. Á síðasta ári var talið að um fjórar milljónir manna væru hjálparþurfi í Sýrlandi en sú tala hefur hækkað upp í sjö milljónir. Sérstaklega er mikilvægt að matur og lyf berist til landsins, en margir bændur geta ekki annast akra sína og verðlag á nauðsynjavörum hefur hækkað mikið undanfarna mánuði. The World Food Program hefur tilkynnt að samtökin muni aðstoða fjórar milljónir manna í Sýrlandi fyrir september, til viðbótar við tvær milljónir flóttamanna í nálægum löndum.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Innlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Segja engan fund á dagskrá Erlent Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Erlent Fleiri fréttir Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt Sjá meira