Erlent

Dropinn sem fyllti mælinn í Tyrklandi

Átök hafa geisað í flestum borgum Tyrklands síðustu fjóra daga eftir að í brýnu sló með lögreglu og mótmælendum á föstudag. Óánægja með ofríki Erdogans forsætisráðherra um árabil er talin liggja að baki mótmælaöldunni.
Átök hafa geisað í flestum borgum Tyrklands síðustu fjóra daga eftir að í brýnu sló með lögreglu og mótmælendum á föstudag. Óánægja með ofríki Erdogans forsætisráðherra um árabil er talin liggja að baki mótmælaöldunni. NordicPhotos/AFP

Hverju er almenningur í Tyrklandi að mótmæla?

Það sem hófst sem friðsamleg mótmæli gegn áformum um uppbyggingu verslunarmiðstöðvar á Taksim-torgi, aðaltorgi Istanbúl, á kostnað grænna svæða í nágrenninu og endaði í átökum við lögreglu, hefur tendrað óánægjubál sem ekki sér fyrir endann á. Fyrst og fremst beinist reiði almennings að stjórnarháttum Receps Tayyips Erdogan forsætisráðherra.

Hann hefur að margra mati hneigst í síauknum mæli í átt til alræðis og hefur mætt andstöðu og gagnrýni af mikilli hörku. Áformin við Taksim-torg, þar sem aðfinnslur almennings, og jafnvel opinberra eftirlitsaðila, hafa verið að engu hafðar, eru talin lýsandi fyrir framgöngu Erdogans. Auk þess hafa lagasetningar Erdogans að undanförnu þótt einkennast af íslömskum áherslum, sem eru mörgum Tyrkjum, sem eru þó langflestir múslímar, þvert um geð.

Sem dæmi má nefna nýsamþykkt lög sem takmarka mjög sölu áfengis. Allt ofantalið, og ýmislegt fleira, hefur ýtt við grasrótarhreyfingum um land allt. Það var þó ekki fyrr en lögregla tók til þess bragðs að dreifa mannfjöldanum við Taksim-torg með táragasi og háþrýstivatnsbyssum sem óánægjan umbreyttist í reiði gegn valdhöfum og kröfur um breytingar.

Nú hafa hundruð manna verið handtekin í óeirðum síðustu fjögurra daga. Erdogan sjálfur hefur brugðist ókvæða við öllu tali um alræðistilburði. Hann bendir meðal annars á að á tíu ára valdatíma sínum hafi hann í þrígang unnið stórsigra í þingkosningum. Erdogan blæs á allt tal um að arabíska vorið sé að teygja sig til Tyrklands.

„Við höfum þegar átt okkar vor í Tyrklandi,“ sagði hann á blaðamannafundi í gær og vísaði til þess að Tyrkland er þrátt fyrir allt lýðræðisríki sem hefur búið við stöðugleika um árabil. „En það eru öfl sem vilja breyta vorinu í vetur.“ Þar á Erdogan bæði við stjórnarandstöðuna og önnur öfl, innanlands sem utan, sem hann telur að leitist við að grafa undan sér.

Ekki er gott að spá hverju mun fram vinda á næstu dögum og vikum, og hvort ófriðaröldurnar komi til með að lægja, en andstöðuöflin hafa verið virkjuð og munu eflaust láta í sér heyra í framtíðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×