Óttuðust sprengju um borð í flugvél 25. maí 2013 00:00 tengist morðinu Viðbúnaðurinn við Stansted-flugvöll í gær og lokun M6-hraðbrautarinnar eru tengd morðinu á hermanninum Lee Rigby á miðvikudag. Fjölskylda hans ræddi við fjölmiðla í herstöð í gær. nordicphotos/afp
Tveir menn voru handteknir um borð í flugvél á Stansted-flugvelli við London í gær, eftir að tilkynnt hafði verið um ógn við farþega í vél sem var á leið frá Lahore í Pakistan til Manchester í Englandi. 297 farþegar voru um borð í vélinni. Þegar flugmenn hennar höfðu tilkynnt að ógn steðjaði að farþegum vélarinnar voru orrustuþotur frá flughernum sendar í loftið og þær fylgdu vélinni til lendingar á Stansted. Í kjölfarið voru mennirnir tveir handteknir og leiddir út úr vélinni. Þeir voru yfirheyrðir í gærkvöldi, en þeir eru báðir breskir ríkisborgarar. Að sögn pakistanskra embættismanna sem fjölmiðlar ræddu við í gær höfðu mennirnir tveir hótað að „eyðileggja flugvélina“ eftir að hafa rifist við flugþjóna. Nauman Rizvi, farþegi um borð í vélinni, sagði að mennirnir hefðu reynt að nálgast flugstjórnarklefann. Þeir voru handjárnaðir í vélinni og þegar þeir höfðu verið fjarlægðir við lendingu fengu farþegar að vita að hótun um hryðjuverk hefði borist. Að sögn annarra farþega var talað um að sprengiefni væru um borð. Enn aðrir greindu frá því að mennirnir tveir hefðu rifist sín á milli og þess vegna hefði þurft að handtaka þá. Flugvélin var rannsökuð í gær og ekki höfðu fundist neinar vísbendingar um sprengiefni eða hryðjuverk í gærkvöldi. Viðbrögð við málinu má tengja við morð sem framið var í London í vikunni, þegar tveir menn myrtu hermann með kjötöxum. Morðið er sagt hryðjuverkaárás og öryggisgæsla hefur verið hert vegna þess um allt landið. M6-hraðbrautinni var einnig lokað í báðar áttir í nágrenni Coventry um stund í gær vegna fregna um grunsamlegan sendiferðabíl sem sagður var innihalda sprengju. Bílnum hafði verið lagt við bensínstöð og tveir menn voru sagðir haga sér grunsamlega. Lögregla og herlið komu á staðinn. Ekki reyndist sprengja í bílnum að sögn lögreglu. „Atvikið er nú rannsakað sem umfangsmikill eldsneytisþjófnaður,“ sagði lögregla í gær. thorunn@frettabladid.is
Mest lesið Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Innlent Játar innbrot í búin Innlent „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Innlent Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Innlent Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Erlent Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Innlent Spreyttu þig á PISA-spurningunum Innlent „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Innlent Fleiri fréttir Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Sjá meira