Erlent

Samkynhneigð pör fá að giftast

Christiane Taubistan dómsmálaráðherra Frakklands hefur barist fyrir frumvarpinu. nordicphotos/AFP
Christiane Taubistan dómsmálaráðherra Frakklands hefur barist fyrir frumvarpinu. nordicphotos/AFP
Neðri deild franska þingsins samþykkti í gær með 329 atkvæðum gegn 229 að heimila samkynhneigðum pörum að ganga í hjónaband. Jafnframt verður samkynhneigðum hjónum leyft að ættleiða börn.

Frumvarpið fer nú fyrir efri deild þingsins. Harðar deilur hafa verið um frumvarpið í Frakklandi og fjölmennar mótmælagöngur verið haldnar. Þrátt fyrir það styður yfirgnæfandi meirihluti Frakka hjónabönd samkynhneigðra, en stuðningurinn við að samkynhneigðir ættleiði börn er eitthvað minni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×