Erlent

Alþjóðadagur helgaður salernum

2,5 milljarðar manna hafa ekki aðgang að salerni.
2,5 milljarðar manna hafa ekki aðgang að salerni. nordicphotos/AFP
Sameinuðu þjóðirnar hafa ákveðið að 19. nóvember verði alþjóðlegur salernisdagur. Með þessu er athygli vakin á því að 2,5 milljarðar manna hafa ekki aðgang að salerni.

Þetta var samþykkt einróma á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gær.



Alls búa um sjö milljarðar manna á jörðinni. Af þeim eiga sex milljarðar farsíma, en einungis 4,5 milljarðar hafa aðgang að salerni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×