Erlent

77 farast í lestarslysi

Jakob Bjarnar skrifar
77 fórust og yfir hundrað slösuðust þegar lestin fór út af spori sínu.
77 fórust og yfir hundrað slösuðust þegar lestin fór út af spori sínu.
Mannskætt lestarslys varð á Spáni í nótt þegar farþegarlest fór út af spori sínu í nótt.

Tala látinna er komin í 77 og yfir 100 slösuðust. Þetta var nálægt hinni fornu borg Santiago de Compostella.

Þetta er versta lestarslys á Spáni í yfir 40 ár. Lestin var á hraðleið frá borginni Madríd til Ferrol og fóru átta vagnar hennar út af spori í beygju.

Ekki er talið að um hryðjuverk sé að ræða heldur slys og/eða gáleysi en fréttir herma að lestinni hafi verið ekið allt of hratt, allt að tvöföldum hraða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×