Óhugnalegar afleiðingar reykinga UE skrifar 18. október 2013 07:00 Helmingur myndarinnar sýnir hvernig fer fyrir reykingamönnum og hinn helmingurinn er af sama manni ef hann reykir ekki. Sá sem reykir er með bóluna fyrir neðan munnvikið og er fölleitur. Tobacco Body
Finnskir læknar hafa sett upp nýja gagnvirka síðu til að vekja athygli á hættum reykinga. Á síðunni má ýta á mismunandi líkamshluta til að fá birtar aukaverkanir sem hafa áhrif á þann tiltekna líkamshluta. Með því að smella á mynd af kven- eða karllíkama má sjá hvernig sama manneskjan lítur út reyklaus eða eftir margra ára reykingar. Þá má fræðast um að til dæmis geta reykingar gert konur gráhærðar, valdið andlitshárvexti hjá konum og hægt á sæðisframleiðslu karla. Á síðunni er lögð áhersla á minna þekktar aukaverkanir. Sumar þeirra eru ansi truflandi. Meðal þess sem kemur fram er að graftarbólur geta orðið erfiðari viðureignar við reykingar, hætta á magasári eykst og blóðflæði versnar, sem veldur því að liturinn á húð reykingamanna getur breyst. Reykingamenn sem hafa reykt pakka á dag í 25 ár fá fimm sinnum fleiri hrukkur en þeir sem hafa aldrei reykt. Reykingar auka framleiðslu karlhormónsins testesteróns í konum sem veldur óvelkomnum hárvexti, meðal annars í andliti. Konur sem reykja pakka af sígarettum á dag eða meira eru töluvert líklegri en þeir sem ekki reykja til að fá andlitshár, byrja fyrr á breytingaskeiði og hafa óreglulegar blæðingar. Reykingamenn eru líklegri til að safna fitu sem sest á magann. Stelpur á aldrinum 16-24 ára sem reykja eru líklegri en stelpur í sama aldurshópi sem reykja ekki til að vera í yfirþyngd. Hár reykingamanna er viðkvæmt og þeir eru líklegri til að verða sköllóttir og gráhærðir en aðrir. Reykingar auka hættuna á blóðtappa og kynlíf reykingamanna er verra en þeirra sem reykja ekki. Reykingar hægja á blóðflæði til getnaðarlims og af því leiðir að reykingamenn eru tvisvar sinnum líklegri en aðrir til að þjást af getuleysi. Verkefnið var unnið í samstarfi við Krabbameinsfélag Finnlands.
Mest lesið Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Innlent Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Erlent Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum Innlent Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Innlent „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Innlent „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent Fleiri fréttir Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Sjá meira