Dramatíkin heldur áfram í Bolshoi-ballettnum 9. júní 2013 20:18 Nikolai Tsiskaridze við æfingar.
Einn frægasti balletdansari Bolshoi-balletsins hefur verið rekinn. Þannig heldur sérkennileg saga balletsins áfram, en innanhúsátök náðu hámarki þegar sýru var skvett í andlit listræns stjórnanda balletsins fyrr á árinu. Georgíski balletdansarinn Nikolai Tsiskaridze hefur verið rekinn úr hinum heimsfræga Bolshoi-ballet. Raunar hefur dramatíkin verið ríkjandi hjá ballettinum síðustu mánuði, bæði á sviði og utan þess. Þannig leiddu innanhúsátök listamannanna til þess að einn dansari skvetti sýru á listrænan stjórnanda ballettsins í janúar síðastliðnum. Sá var handtekinn tveimur mánuðum síðar og hefur játað árásina samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Moskvu. Hinsvegar var það Nikolai sem var fyrst handtekinn og yfirheyrður vegna þessa hryllilega glæps. En Nikolai hefur verið iðinn við að gagnrýna Bolshoi-ballettinn og átti í miklum útistöðum við listræna stjórnandann. Þá sveið forsvarsmönnum ballettsins sérstaklega undan ummælum dansarans um rándýra endurgerð leikhússins, en þá sagði Nikolai að endurbreytingarnar minntu á tyrkneskt hótel. Ekki er ljóst hversvegna Nikolai var rekinn, upplýsingafulltrúi ballettsins sagði við fjölmiðla, að það þyrfti ekki að gefa neinar skýringar þegar starfsfólki væri sagt upp. Fyrr á árinu kom fram að hann væri æviráðinn og því væri ómögulegt að reka hann, en Nikolai er tæplega fertugur. Dansarinn hefur ekki viljað tjá sig efnislega um málið og segir það aðferð stjórnenda ballettsins til þess að draga athyglina frá óperu sem var frumsýnd á dögunum, og fékk afleita dóma. Nokkrir dansarar hafa stigið opinberlega fram og stutt dansarann, meðal þeirra er rússneska ballerínan Anastasia Volochkova, sem var rekin frá ballettnum árið 2003. Ástæðan var sú að hún þótti of þung fyrir dansarana sem áttu að lyfta henni. Hún skrifaði á Twitter að hún hefði verið svo heppin að eiga góða móður að þegar hún var rekin. Aftur á móti eigi Nikolai engan að, „og það er engin til þess að hugga hann,“ sagði hún meðal annars á twittinu. Það er því ljóst að dramatíkinni er hvergi lokið hjá Bolshoi ballettnum.
Mest lesið Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Innlent Játar innbrot í búin Innlent „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Innlent Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Innlent Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Erlent Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Innlent Spreyttu þig á PISA-spurningunum Innlent „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Innlent Fleiri fréttir Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Sjá meira