Erlent

Trúaðir með lakara gáfnafar

Jóhannes Stefánsson skrifar
Trú Rannsóknir sýna að trúlausir eru jafnan greindari en trúaðir.
Trú Rannsóknir sýna að trúlausir eru jafnan greindari en trúaðir.
Ný samanburðarrannsókn sem kannaði mælingar frá árinu 1928 til dagsins í dag sýnir að sterk neikvæð tengsl eru á milli trúariðkunar og gáfnafars.

Trúlausir eru þannig líklegri til að skilja og leysa flókin vandamál, læra og hugsa rökrétt.

Rannsóknin tók saman niðurstöður 63 rannsókna, en í 53 þeirra voru þessi tengsl til staðar.

Í niðurlagsorðum rannsóknarinnar sem birtist í fagtímaritinu Personality and Social Psychology Review segir að líklegasta skýringin sé sú að greint fólk líti á trú sem órökrétta, óvísindalega og ómælanlega og þar af leiðandi höfði trú síður til þess.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×