Erlent

Póstflutningavél fórst í Alabama

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Flugvélin hrapaði við alþjóðaflugvöllinn í Birmingham í Alabama.
Flugvélin hrapaði við alþjóðaflugvöllinn í Birmingham í Alabama. Mynd/AP
Flutningaflugvél á vegum UPS-póstflutningafyrirtækisins fórst við alþjóðaflugvöllinn í Birmingham í Alabama í morgun.

Flugmaður og aðstoðarflugmaður vélarinnar létust.

Vélin sundraðist í nokkra parta og tvær eða þrjár sprengingar heyrðust þegar hún lenti á jörðunni, en talið er að þær sprengingar tengist eldsneyti vélarinnar.

Íbúar í grennd segja einkennileg hljóð hafa borist frá vélinni, eins og eldsneytisgjöfin hafi orðið of mikil.

„Við töldum að þeir væru að reyna að komast til flugvallarins. En nokkrum mínútum seinna heyrðist mikil sprenging," hefur AP fréttastofan eftir Sharon Wilson, sem varð vitni að slysinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×