Erlent

Leigubílaakstur Stoltenbergs auglýsingabrella

Jakob Bjarnar skrifar
Stoltenberg sem leigubílstjóri spjallar við farþegar um landsins gagn og nauðsynjar.
Stoltenberg sem leigubílstjóri spjallar við farþegar um landsins gagn og nauðsynjar.
Það vakti nokkra athygli þegar fréttist að Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, hefði um daginn dulbúið sig leigubílstjóra til að heyra viðhorf farþeganna til stjórnvalda.

En nú er komið uppúr dúrnum að í það minnsta 5 af 14 farþegum hans fengu borgað frá auglýsingastofu á vegum Verkamannaflokks Stoltenbergs, fyrir að sitja í bílnum sem farþegar. Þetta hafa talsmenn Verkamannaflokksins nú viðurkennt og þykir málið allt hið vandræðalegasta, en aðeins mánuður er til kosninga í Noregi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×