Erlent

Pönduhúnn tekur loks brjóst

Pandan Yuan Yuan byrjaði að gefa húni sínum brjóst í dag.
Pandan Yuan Yuan byrjaði að gefa húni sínum brjóst í dag. MYND/AFP
Starfsmönnum dýragarðsins í Tæpei  í Tævan var létt í dag þegar Panda-birnan Yuan Yuan, byrjaði loks að gefa afkvæmi sínu brjóst.

Rúmur mánuður er nú liðin frá því húnninn kom í heiminn en síðan þá hefur hann verið í hitakassa á meðan móðirin var þjálfuð til að annast afkvæmið. Afar sjaldgæft er að Pöndur fæði afkvæmi í dýragörðum og því mikilvægt að vel takist til.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×