Erlent

Þriggja ára fangelsisvist áður en málið fer fyrir dómstóla

Kristján Hjálmarsson skrifar
Michaella McCollum Connolly, 20 ára, og Melissa Reid, 19 ára, voru handteknar á flugvellinum í Lima, höfuðborg Perú, með kókaínið á þriðjudaginn var.
Michaella McCollum Connolly, 20 ára, og Melissa Reid, 19 ára, voru handteknar á flugvellinum í Lima, höfuðborg Perú, með kókaínið á þriðjudaginn var.
Tvær breskar stúlkur, sem handteknar voru í Perú grunaðar um að ætla að smygla um 6 kílóum af kókaíni úr landi, gætu þurft að dúsa bak við lás og slá í allt að þrjú ár áður en mál þeirra verður tekið fyrir af þarlendum dómstólum.

Michaella McCollum Connolly, 20 ára, og Melissa Reid, 19 ára, voru handteknar á flugvellinum í Lima, höfuðborg Perú, með kókaínið á þriðjudaginn var. Efnið var falið í ferðatöskum en það er talið vera um 300 milljóna króna virði.

Lögregluyfirvöld í Lima segja að stúlkurnar hafa játað brot sitt við yfirheyrslur en þær hafa þó ekki enn fengið enskumælandi túlk.

Að sögn Bruna Min, sem starfar fyrir samtök um réttláta dómsmeðferð, gætu stúlkurnar þurft að dúsa í 30 daga gæsluvarðhaldi áður en ákveðið verður hvort ákæra verði gefin út. Ef þær verða svo ákærðar gætu þær þurft að bíða í þrjú ár þar til mál þeirra verður tekið fyrir. Fíkniefnamál eru þau mál sem koma oftast til kasta dómstóla í Perú.

„Perú er eitt þeirra landa þar sem dómskerfið er þjakað af seinagangi. Samtökin okkar hafa fengið fjölda kvartana vegna þessa,“ segir Min.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×