Lyftingar óléttrar konu valda fjaðrafoki Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 20. september 2013 12:48 Ellison segir athugasemdirnar hafa lítil áhrif á sig og þakkar stuðningsfólki sínu fyrir hvatninguna.
Lea-Ann Ellison, 35 ára verðandi móðir í Los Angeles, setti allt á annan endann þegar hún birti mynd af sér að lyfta lóðum á Facebook-síðu áhugafólks um Crossfit. Ellison, sem er vaxtarræktarkona, er komin átta og hálfan mánuð á leið og hafa rúmlega 16 þúsund athugasemdir verið settar við ljósmyndina á einungis fimm dögum. Sumir lýsa yfir ánægju sinni á meðan aðrir gagnrýna Ellison harðlega. „Þetta er viðbjóðslegt,“ segir í einni athugasemdinni. Annar lýsir áhyggjum sínum og segir það stórhættulegt fyrir óléttar konur að lyfta þungu vegna þess að það geti rifnað gat á fylgjuna og valdið fósturláti. „Það er mjög eigingjarnt af henni að leggja líf barnsins í hættu við það að reyna að ná markmiðum sínum,“ skrifar sá þriðji.Ekki voru allir í athugasemdakerfinu sáttir við myndir Ellison.Aðrir verja Ellison og hvetja hana. „Þetta er betra en óléttir offitusjúklingar með háþrýsting og sykursýki sem verða andstuttir við að labba upp tröppur,“ skrifar einn. Sjálf segir Ellison að athugasemdirnar hafi lítil áhrif á sig og þakkar stuðningsfólki sínu fyrir hvatninguna. Hún á tvö börn fyrir og segist alltaf hafa haft áhuga á íþróttum og vaxtarrækt. Eftir að yngra barn hennar fæddist fannst henni þó kominn tími til að færa áhugann upp á næsta stig.
Mest lesið Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Innlent Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Erlent Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Erlent Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Innlent „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Innlent Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum Innlent Fleiri fréttir Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Sjá meira