Erlent

Klámframleiðandi hættir að stæla Ben & Jerry's-ís

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Klámmyndirnar báru nöfn sem líktust Ben & Jerry's-ístegundum, og kápur myndanna voru skopstæling á hönnun ísumbúðanna.
Klámmyndirnar báru nöfn sem líktust Ben & Jerry's-ístegundum, og kápur myndanna voru skopstæling á hönnun ísumbúðanna.
Klámframleiðandi í Kaliforníu hefur samþykkt að hætta framleiðslu á klámmyndum byggðum á vörum ísframleiðandans Ben & Jerry's.

Ísframleiðandinn höfðaði mál á hendur fyrirtækinu Caballero Video, en klámmyndirnar báru nöfn sem líktust Ben & Jerry's-ístegundum, og kápur myndanna voru skopstæling á hönnun ísumbúðanna.

Þetta sættu ísgerðarmennirnir sig ekki við, og töldu þeir athæfið sverta nafn Ben & Jerry's-vörkumerkisins og brjóta gegn vörumerkjarétti. Höfðuðu þeir því mál.

Fyrirtækin náðu þó samkomulagi hjá dómara og samþykkti Caballero Video að hætta framleiðslu á myndaflokki sínum, sem bar nafnið Ben & Cherry's.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×