Erlent

Kafari kemst í hann krappan

mynd/skjáskot
Kafaranum Eugene van Wyngaardt var brugðið þegar hann rakst á ógnvænlegan hvítháf undan ströndum Port Elizabeth í S-Afríku.

Hann var við spjótveiðar þegar hinn óvænti „gestur“ kom syndandi á móti honum.

Í meðfylgjandi myndbandi má heyra veinin í Wyngaardt þegar hákarlinn nálgast. Hann syndir þó á brott en snýr við og kemur enn nær í seinna skiptið.

Þá stuggar Wyngaardt við skepnunni og syndir í dauðans ofboði að bát sínum. Sjón er sögu ríkari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×