Sérsveit lagði hald á fíkniefni að verðmæti 400 milljónir í Kristjaníu 5. febrúar 2013 06:13
Lögreglan í Kaupmannahöfn lagði hald á fíkniefni að verðmæti 17 milljónir danskra króna eða tæplega 400 milljónir króna í Kristjaníu í janúarmánuði. Það er sérsveitin Task Force Pusherstreet sem stendur á bakvið þennan árangur. Sveitin hefur það eina verkefni að ganga á milli bols og höfuðs á þeim sem stunda fíkniefnasölu í Kristjaníu og þeim sem flytja fíkniefnin inn á staðinn. Í aðgerðum sínum í Kristjaníu í síðasta mánuði lagði þessi sérsveit hald á 132 kíló af hassi, 62 kíló af marijúana eða skúnki og nærri 15.000 jónur. Götuverðmæti þessara efna er metið á um 17 milljónir danskra króna. Í frétt í Jyllands Posten um málið segir að þar að auki hafi Task Force Pusherstreet lagt hald á 22 vopn, þar á meðal fimm skammbyssur. Poul Kjeldsen yfirmaður sérsveitarinnar segir að skammbyssurnar sem sveitin náði sýni því miður að skipulög glæpasamtök séu að leggja Kristjaníu undir sig. Einnig hafi magnið af fíkniefnum sem sveitin nái vaxið stöðugt milli mánaða þann tíma sem sérsveitin hefur starfað. Að auki sektaði sérsveitin nær 170 ökumenn við Kristjaníu fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna í janúar.
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent Segir sig hafa mátt þola þöggun og ógnarstjórnun í Eyjum Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Innlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Fleiri fréttir Ungum ökuþórum bannað að keyra á nóttunni og þurfa að merkja sig Húsleit gerð hjá spænskum sósíalistum Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Hart sótt að Sánchez: Réttarhöld yfir litla bróður hefjast í dag Ný tilskipun Talíbana lögleiði barnahjónabönd á ný Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Sjá meira