Hægri flokkunum er spáð stórsigri í Noregi Guðsteinn Bjarnason skrifar 6. september 2013 07:30 Jens Stoltenberg má vera áhyggjufullur fyrir komandi kosningar. Verkamannaflokknum hefur verið spáð um eða innan við 30 prósentum atkvæða, sem hefði í för með sér að stjórnarflokkarnir misstu meirihlutann. NordicPhotos/AFP
Allt stefnir í að vinstri stjórn Jens Stoltenbergs missi þingmeirihluta í kosningum á mánudag. Hægri flokkunum fjórum er spáð ríflega 55 prósentum atkvæða, en „rauðgrænu“ flokkunum þremur er spáð innan við 40 prósentum. Hinn umdeildi Framfaraflokkur, sem aldrei hefur náð að komast í ríkisstjórn þrátt fyrir vinsældir meðal kjósenda, virðist nú í fyrsta sinn eiga góða möguleika á þátttöku í stjórn með hægri flokkunum. Framfaraflokkurinn var lengi helst þekktur fyrir stóryrtar yfirlýsingar Carls I. Hagen, þáverandi leiðtoga flokksins, sem óspart reyndi að veiða atkvæði út á ótta almennings við útlendinga og glæpi. Siv Jensen, sem tók við formennsku í flokknum árið 2006, hefur reynt að breyta ímynd flokksins og leggur áherslu á hefðbundna frjálshyggjustefnu, sem gengur út á að draga úr umsvifum ríkisins og efla frelsi einstaklingsins. Þetta hefur borið þann árangur að Erna Solberg, leiðtogi Hægriflokksins, hefur nú ekkert lengur að athuga við samstarf við Framfaraflokkinn. Stoltenberg, sem er formaður Verkamannaflokksins, varar hins vegar eindregið við miklum samdrætti í ríkisútgjöldum og hefur enn ekki gefið upp vonina um að vera áfram í stjórn, jafnvel þótt það verði minnihlutastjórn.Hagen sýnir gamalkunna takta Nokkuð uppnám varð í Noregi í gær þegar Carl I. Hagen, fyrrverandi formaður Framfaraflokksins, tjáði sig óvænt á Facebook-síðu sinni og sagði stjórn Stoltenbergs bera ábyrgð á morði á rúmlega tvítugri stúlku. Hann eyddi færslunni stuttu síðar eftir hörð viðbrögð og athugasemdir, meðal annars frá félögum í Framfaraflokknum. Hann sagðist fallast á að færslan hefði verið dálítið harkalega orðuð, en að hann stæði samt enn við meginatriðið, sem væri að vægar refsingar og langar biðraðir eftir fangelsisplássi byðu heim hættunni á að dæmdir afbrotamenn sem ganga lausir fremdu alvarlega glæpi.
Mest lesið Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Innlent Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Eldur olli miklum skemmdum í kjallara Innlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Nánast búin með stafrófið Innlent Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Innlent Fleiri fréttir Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Sjá meira