Lífvörður Hitlers látinn Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 6. september 2013 15:34 Misch var handsamaður af Sovétmönnum en látinn laus árið 1954 og bjó eftir það í Berlín til dauðadags.
Rochus Misch, fyrrverandi lífvörður Adolfs Hitler, lést á þriðjudag eftir veikindi, 96 ára að aldri. Misch starfaði við hlið Hitlers í fimm ár í seinni heimsstyrjöldinni og var einn af þeim sem komu að honum látnum í neðanjarðarbyrgi sínu eftir að hann framdi sjálfsvíg þann 30. apríl 1945. Eftir að Misch yfirgaf byrgið var hann handsamaður af Sovétmönnum en eftir að hann var látinn laus árið 1954 settist hann að í Berlín þar sem hann bjó til dauðadags. „Hann var ekki skrímsli,“ sagði Misch um Hitler í samtali við AP árið 2005 og sagði hann hafa verið „ósköp venjulegan mann“. Misch hefur fengið töluvert af aðdáendabréfum þar sem meðal annars er óskað eftir eiginhandaráritun frá honum en fyrir þremur árum hætti hann að svara þeim sökum aldurs. „Bréfin komu frá Kóreu, Knoxville, Tennessee, frá Finnlandi og Íslandi og enga óvild var að finna í neinu þeirra,“ sagði hann um bréfin við þýskt dagblað árið 2010. Þá hefur hann verið persóna í kvikmyndum vegna nálægðar sinnar við Hitler og einnig tekið að sér hlutverk handritsráðgjafa. Til dæmis var hann Christopher McQuarrie, handritshöfundi kvikmyndarinnar Valkyrie, innan handar við skrifin. Tom Cruise, aðalleikari myndarinnar, neitaði hins vegar að hitta Misch og færði rök fyrir því í viðtali við Los Angeles Times: „Ég vildi ekki hitta hann. Illska er alltaf illska, sama hversu gamall þú ert.“Leikarinn Heinrich Schmieder fór með hlutverk Misch í kvikmyndinni Der Untergang (Downfall) árið 2005.
Mest lesið „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Innlent Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Erlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Árásarfeðgarnir nafngreindir Erlent Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Erlent Komu sér fyrir í ruslageymslu og kveiktu þar eld Innlent Skotmennirnir feðgar Erlent Sinntu fimmtán málum í tengslum við Iceguys tónleikana Innlent Heyrði byssuhvellina: Skotvopnalöggjöfin rædd á kaffistofunni Erlent Fleiri fréttir Spjótin beinast að syni Reiners Ætla að herða lög um byssur enn frekar eftir árásina Starfsmenn Louvre mótmæla slæmum aðstæðum Hálfíslensk hljómsveit skilgreind öfgasamtök í Rússlandi Morðinginn í Brown gengur enn laus Heyrði byssuhvellina: Skotvopnalöggjöfin rædd á kaffistofunni Sílebúar tóku Kast Árásarfeðgarnir nafngreindir Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Skotmennirnir feðgar Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Einn í haldi í tengslum við skotárás í Brown-háskóla Rabbíni drepinn í árásinni Grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk á jólamarkaði Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Tveir látnir eftir skotárás í háskóla Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Rannsókn á meintri gagnaöflun um Giuffre felld niður Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Föngum sleppt og viðskiptaþvingunum aflétt Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Witkoff fundar með Selenskí ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Trump, Clinton, Gates og fleiri á nýjum Epstein-myndum Selenskí í Kúpíansk, sem Pútín sagðist hafa hernumið Segir Trump að skipta sér ekki af evrópsku lýðræði Stefna á að taka fleiri skip frá Venesúela Evrópa þurfi að vera búin undir aðra stórstyrjöld Meintur morðingi Kirk mætti fyrir dómara í gær Sjá meira