Erlent

LEGO græðir um 280 milljónir á dag

Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar
Salan á LEGO-varningi í Asíu hefur aukist um 35 prósent.
Salan á LEGO-varningi í Asíu hefur aukist um 35 prósent.
Fyrstu sex mánuði ársins græddi LEGO-leikfangarisinn 13 milljónir danskra króna á dag, jafngildi rúmlega 279 milljóna íslenskra króna.

Á fréttavef Jótlandspóstsins segir að fyrstu sex mánuði ársins hafi salan í Asíu aukist um 35 prósent. Í Evrópu hafi hún hins vegar aukist um 8 prósent en um 4 prósent í Bandaríkjunum. Á heimsvísu hefur salan fyrstu sex mánuðina aukist um 9 prósent miðað við sama tíma í fyrra.

Fyrr á árinu tilkynnti fyrirtækið að von væri á Lego-útgáfu af Simpsons fjölskyldunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×