Kona sem skrifaði um líf sitt í Afganistan var myrt Sylvia Briem skrifar 6. september 2013 18:45 Sushimita Banerjee.
Sushimita Banerjee lést í Afganistan af völdum skotsára síðastliðinn fimmtudag, 18 árum eftir að leiðtogar Talíbana dæmdu hana til dauða fyrir að neita að klæðast búrku á almannafæri. Síðastliðinn fimmtudagsmorgun réðust grímuklæddir menn inn á heimili Banerjee og eiginmanns hennar í Paktika-héraði í austurhluta landsins. Árásarmennirnir bundu hjónin og fóru síðan með Banerjee en skildu eiginmann hennar eftir. Lögreglustjóri Paktika sagði að mennirnir hefðu farið með hana í trúarskóla í þorpinu Sarrai Kala, þar sem hún var skotin 25 sinnum. Ekki er vitað hvers vegna hún var myrt. Banerjee skrifaði um reynslu sína sem indversk kona gift manni frá Afganistan. Í fyrstu bók sinni fjallaði hún um að hún hefði verið ofsótt fyrir að neita að klæðast búrku. Hún náði síðar að flýja Afganistan eftir tvær misheppnaðar tilraunir. Þegar hún kom til Indlands skrifaði hún sögu sína og var í kjölfarið gerð kvikmynd eftir henni undir heitinu Flóttinn frá Afganistan. Heimamaður í Sarrai Kala sagðist hafa heyrt það frá ættingjum sínum að Talíbanar væru að leita að Banerjee. Þrátt fyrir að bæjarbúar væru fljótir að saka Talíbana um morðið hafa talsmenn þeirra neitað allri ábyrgð á dauða hennar. Sögðust þeir ekki taka fólk af lífi án dóms og laga.
Mest lesið Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Níu nauðgunarákærur bætast við langan lista Erlent Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Erlent Tate-bræður teknir fastir í Miami Erlent Bílvelta í Skötufirði Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Fleiri fréttir Mamdani skoðar að láta handtaka Netanjahú Níu nauðgunarákærur bætast við langan lista Mörg hundruð manns hafa misst heimili sín í stórbrunanum í Noregi Háskólinn á Grænlandi fer ekki í samstarf við Bandaríkjamenn Ekki lengur ákærður fyrir tilraun til manndráps Búið að ráða niðurlögum eldsins Tate-bræður teknir fastir í Miami Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Forseti Ungverjalands segir af sér Þriðja hitabylgjan nálgast: Hiti gæti náð 45 gráðum á Spáni Skógræktarstarfsmönnum haldið í gíslingu í hjólhýsi Fjölskyldur kvennanna í sárum eftir nýjar fréttir Maður fluttur með sjúkraflugi undir læknishendur eftir hákarlaárás Ríflega fimm þúsund látnir í kjölfar skjálftanna Árásarmaðurinn hafi sagst „ekki geta meir“ Ekki með tök á eldinum og slökkviliðsstjóri hljóp á sig Hótar tollum vegna skógareldanna Yfir hundrað íbúðir gjörskemmdar Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Rúmlega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen Flóka saknað og grunur um þjófnað Skotárás við Álaborg Boðar aukin ríkisafskipti og heitir því að verða áfram „maður fólksins“ Mótmælt í Kænugarði vegna uppsagnar varnarmálaráðherrans Reykur frá skógareldum í Kanada veldur vandræðum víða Gerðu árásir á Íran sjötta daginn í röð Trump sáir efasemdafræjum í aðdraganda þingkosninga Gróðureldar loga stjórnlaust og fólki ráðlagt að halda sig innandyra Fimmtíu og sjö með stöðu sakbornings vegna vanrækslu brúar R. Kelly biðlar til Trump um að milda fangelsisdóminn Sjá meira