Móðir Baby P látin laus Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 8. október 2013 15:45 Peter litli var 17 mánaða þegar hann lést eftir hrottalegar misþyrmingar af hálfu móður sinnar, stjúpföður og frænda.
Móðir Peter Connelly, sem varð þekktur sem Baby P eftir dauða sinn, verður látin laus úr fangelsi á næstunni. Móðirin, Tracey Connelly var dæmd í fimm ára fangelsi hið minnsta í maí 2009 fyrir að valda dauða sonar síns sumarið 2007. Þetta kemur fram á vef Guardian. Peter litli var 17 mánaða þegar hann lést eftir hrottalegar misþyrmingar af hálfu móður sinnar, stjúpföður og frænda. Barnaverndaryfirvöld í Bretlandi höfðu fengið yfir 60 tilkynningar um að foreldrar barnsins vanræktu hann alvarlega. Þrátt fyrir það var drengurinn ekki tekinn af þeim. Málið vakti mikla reiði í Bretlandi og vakti það sömuleiðis mikla athygli hér á landi. Áfrýjunarnefnd fangelsismála í Bretlandi hefur tekið mál Tracey fyrir og mælt hefur verið fyrir reynslulausn fyrir hana. Fyrst var fjallað um mál Tracey fyrir áfrýjunarnefndinni í ágúst 2012 en þá var ekki mælt með reynslulausn. Í yfirlýsingu frá áfrýjunarnefndinni segir að að tekið sé tillit til brota konunnar, hegðun hennar og meðferð í fangelsinu, auk skýrslna frá meðal annars sálfræðingi og fangelsisvörðum. Tracey, sem er 32 ára í dag, verður á skilorði það sem eftir er ævi sinnar og getur verið kölluð í fangelsi hvenær sem er, ef hún brýtur einhver þau skilyrði sem henni verða sett. Stjúpfaðir drengsins, Steven Barker, var einnig dæmdur fyrir að valda dauða Peter en auk þess var hann dæmdur fyrir að nauðga tveimur 10 ára stúlkum. Hann fékk 10 ára dóm. Bróðir Steven var einnig dæmdur fyrir sína þátttöku í þeim atburðum sem leiddu til dauða drengsins en fékk hann styttri dóm en hin og var látinn laus í ágúst 2011 en var aftur settur í fangelsi í apríl á þessu ári.
Mest lesið Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Erlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Rúmlega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen Erlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Innlent Halldór Árni Sveinsson er látinn Innlent Fleiri fréttir Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Rúmlega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen Flóka saknað og grunur um þjófnað Skotárás við Álaborg Boðar aukin ríkisafskipti og heitir því að verða áfram „maður fólksins“ Mótmælt í Kænugarði vegna uppsagnar varnarmálaráðherrans Reykur frá skógareldum í Kanada veldur vandræðum víða Gerðu árásir á Íran sjötta daginn í röð Trump sáir efasemdafræjum í aðdraganda þingkosninga Gróðureldar loga stjórnlaust og fólki ráðlagt að halda sig innandyra Fimmtíu og sjö með stöðu sakbornings vegna vanrækslu brúar R. Kelly biðlar til Trump um að milda fangelsisdóminn Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Bandaríkjamenn skjóta á skip sem hugðist leggja við bryggju á Kharg-eyju Tvö þúsund smitaðir og rúmlega sjö hundruð látnir Sex létust í árásum Rússa í nótt Fyrrum forsætisráðherra Noregs vill þjóðaratkvæði um aðildarviðræður Segja gervigreindina hafa valið þá sem sagt var upp og saka Meta um mismunun Carroll fær loksins miskabæturnar frá Trump Þurfa að hafa lokið herskyldu til að fá vernd innan ESB Gus sleginn á 6,3 milljarða króna Eldri unglingum bannað að fara á samfélagsmiðla á nóttunni Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Trump hótar árásum á orkuver og Íranir að stöðva alla olíuflutninga Sex létust í eldsvoða í Brussel Hættur við innheimtu tolls á Hormússundi Morðið á Ann Widdecombe var „markviss árás“ Vinna ekki með Bandaríkjamönnum af þjóðaröryggisástæðum Telja sjötugan Þjóðverja hafa byrlað og nauðgað fjölda kvenna Sjá meira