Erlent

Óeirðir í kröfugöngu kennara í Brasilíu

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Hópurinn samanstóð af kennurum, nemendum, meðlimum verkalýðssamtaka og aðgerðasinnum.
Hópurinn samanstóð af kennurum, nemendum, meðlimum verkalýðssamtaka og aðgerðasinnum. mynd/afp
Kröfuganga til stuðnings kennurum í Ríó de Janeiro fór úr böndunum í gær þegar til átaka kom á milli mótmælenda og lögreglu. Kennararnir krefjast hærri launa og hafa nú verið í verkfalli í tæplega tvo mánuði.

Gangan var friðsamleg fram eftir degi en þegar kvölda tók brutust út óeirðir. Lítill hópur mótmælenda henti molotov-kokteilum, handsprengjum og eyðilagði öryggishlið við ráðhús borgarinnar. Þá var kveikt í strætisvagni og brotist inn í banka.

Lögregla notaði táragas gegn mótmælendunum, en hópurinn samanstóð af kennurum, nemendum, meðlimum verkalýðssamtaka og aðgerðasinnum.

Að sögn kennaranna voru um 50 þúsund manns í kröfugöngunni áður en óeirðirnar brutust út en lögregla segir um 10 þúsund manns hafa mótmælt.

Lítill hópur mótmælenda henti molotov-kokteilum, handsprengjum og eyðilagði öryggishlið við ráðhús borgarinnar.mynd/afp
Að sögn kennaranna voru um 50 þúsund manns í kröfugöngunni áður en óeirðirnar brutust út.mynd/afp



Fleiri fréttir

Sjá meira


×