Skildu farþegana eftir en flugu með farangurinn á brott Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 8. október 2013 13:23 Fólkið sem skilið var eftir ætlaði að fljúga frá Spáni til Englands með flugfélaginu EasyJet.
29 flugfarþegar urðu eftir á spænskum flugvelli og horfðu á flugvélina sem þeir áttu að fara með fljúga á brott án þeirra með allan farangur farþeganna innanborðs.Þetta kemur fram í frétt Daily Mail. Fólkið sem skilið var eftir ætlaði að fljúga frá Spáni til Englands með flugfélaginu EasyJet. Það hafði tékkað sig inn á réttum tíma og var fólkið við það að fara að stíga um borð í vélina eftir að hafa sýnt brottfaraspjöld og farið í gegnum brottfararhliðið þegar flugvallarstarfsmenn komu að og settu öryggisborða fyrir þannig að fólkið komst ekki um borð. Nokkrum mínútum síðan horfðu farþegarnir upp á vélina fljúga hálftóma af stað. Þegar farþegarnir reyndu að fara til baka komust þeir að því að þeir voru læstir inni og þurftu að bíða í 20 mínútur þar til einhver kom til þess að hleypa þeim út. En þá höfðu þau lamið á hurðina og kallað. Það var starfsmaður í fríhöfninni sem heyrði í þeim og kallaði til flugvallastarfsmanna sem höfðu ekki gert sér grein fyrir því að flugvélin hafði farið af stað án þess að fólkið væri um borð og að það væri læst inni, innan brottfarahliðsins. Farþegunum var boðið að fá fría gistingu á flugvallahóteli eða að taka næsta flug með flugfélaginu til Englands. Farþegi sem átti að vera um borð var mjög hissa á atburðinum. Þegar hliðinu hefði verið lokað hélt hann að um misskilning væri að ræða en sá svo flugvélina fljúga á brott. Hann sagði það hafa verið óhugnanlega tilfinningu að vera svo læstur þarna inni þessar mínútur. Hann sagði að starfsmaður EasyJet hefði komið á staðinn og ekki trúað því að svona gæti gerst. Talsmaður EasyJet sagði að flugvélin hefði farið af stað enda ekkert sem hefði gefið til kynna en að allir væru komnir um borð. Þar sem allir höfðu sýnt brottfaraspjöldin og allt rétt skráð þar. Alla jafna séu farþegarnir ekki taldir og treyst sé á rétta skráningu við brottfarahliðið. EasyJet harmar þennan atburð og ætlar að fara ofan í málið en býður farþegunum 29 úttektamiða hjá flugfélaginu.
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Innlent „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent Fleiri fréttir Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Sjá meira