Þýðir ekki að halda óánægðum Suarez Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 20. júní 2013 08:20 Jamie Carragher og Luis Suarez. Nordic Photos / Getty Images
Jamie Carragher telur að það sé ekki til neins að halda Luis Suarez hjá Liverpool ef hann er óánægður með dvöl sína þar. Mikið hefur verið rætt og ritað um framtíð Suarez en hann sjálfur hefur gefið í skyn að hann sé spenntur fyrir því að ganga til liðs við Real Madrid. Hann hefur einnig sagst vera óánægður með lífið í Englandi en hann mun byrja næsta keppnistímabil í leikbanni eftir að hafa bitið Branislav Ivanovic, leikmann Chelsea. „Við höfum reynslu af því að vera með óánægða leikmenn frá því að Fernando Torres var hér. Það var rangt að halda honum því síðustu átján mánuðina var hann mjög ólíkur sjálfum sér,“ sagði Carragher við enska fjölmiðla en varnarmaðurinn sterki lagði skóna á hilluna í vor. „Ég tel að Torres hafi á stundum ekki lagt sig allan fram fyrir Liverpool og því voru það mistök að halda honum óviljugum hjá félaginu. En ég reikna ekki endilega með því að hið sama muni gera í tilfelli Suarez því þeir eru ólíkir einstaklingar.“ „En engu að síður þurfum við að vera meðvitaðir um þessa hættu. Suarez er einn besti leikmaður heims en að spila með liði sem hafnaði í sjöunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Að sjálfsögðu finnst honum freistandi að fara til liðs eins og Real Madrid.“ „Ef Suarez ákveður að fara verður Liverpool að fá eins mikið og mögulegt er fyrir hann.“
Enski boltinn Mest lesið Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Fótbolti Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Fótbolti „Hreinlega spilling í gangi ítrekað“ Fótbolti FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Fótbolti Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Íslenski boltinn Veikindi herja á norska liðið Fótbolti Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino Fótbolti Sölvi reiður þrátt fyrir sigur Fótbolti Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Körfubolti Maður dagsins á HM: Gat valið um fjórar íþróttir sem táningur Fótbolti Fleiri fréttir Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Liverpool hafnaði tilboði í Curtis Jones Sonur Mark Hughes lést aðeins 38 ára gamall Hefja viðræður um kaup á Tonali Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Sjá meira