Fann móður sína eftir 52 ár Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 12. október 2013 18:24 Þetta er myndin sem Linda notaði til þess að finna móður sína aftur.
Linda Evans, sextug kanadísk kona, fann móður sína eftir 52 ár en móðirin hafði horfið frá heimili þeirra árið 1961. Í 50 ár var haldið að móðirin væri látin. Þetta kemur fram í frétt Cbc. Hún hvarf af heimili sínu einn daginn en þar átti hún eiginmann, son og dótturina Lindu. Þar var sumarið 1964 sem að tilkynnt var til lögreglu að konan, Lucy Johnson væri horfin en þá hafði hún verið horfin í þrjú ár. Grunur beindist að því að eiginmaður hennar hefði myrt hana en líkið fannst aldrei né nokkrar vísbendingar um hvað hefði orðið af henni. Þegar málinu var loksins lokað í júní á þessu ári ákvað Linda að fara sjálf að leita að móður sinni. Hún auglýsti eftir henni í blöðum nálægt þeim stað sem hún vissi að móðir hennar hafði alist upp. Það bar árangur og fljótlega hafði kona samband við Lindu og sagðist halda að þetta væri líka móðir hennar. Þar var þá komin hálfsystir Lindu og komst hún að því að móðir hennar hafði stofnað nýja fjölskyldu. Linda ákvað að fara og hitta móður sína og fjölskyldu. „Hún þekkti mig um leið og hún sá mig, enda erum við líkar og ég og hálfsystur mínar erum líka mjög líkar,“ segir Linda. „Hún kom til mín og tók utan um mig og sagðist elska mig.“ Linda var um átta ára þegar móðir hennar fór. Hún þurfti að tilkynna henni um lát bróður síns og sonar Lucy þegar þær hittust. Móðirin sagði Lindu að hún hefði farið vegna þess að faðir hennar hefði neytt hana til þess að fara. Hann hefði árum saman beitt hana ofbeldi og þegar hún hefði snúið við til að taka börnin hefði hann bannað henni það. Hún hafi þá ekki gert fleiri tilraunir til þess að sækja börnin sín. Linda hefur ákveðið að taka þessar skýringar móður sinnar trúanlegar. Of langt sé um liðið og nú vilji hún nýta tímann til að kynnast móður sinni og nýju fjölskyldunni.
Mest lesið Bæta ekki fallvarnir við veginn: „Þetta er eilífur slagur“ Innlent „Myndi ekki mæla með þessu við nokkurn mann“ Innlent Gular viðvaranir í kortunum Veður Steypumót féll á starfsmann byggingarfyrirtækis Innlent Óttast að boð og bönn ráðherra muni setja verslanir í þrot Innlent Óvissu erlendra nemenda tímabundið eytt Erlent Tékkneski og bandaríski herinn ásamt flugsystrum á Akureyri Innlent Sæki um íslenska vegabréfsáritun til að ferðast annað Innlent Hátt í sjö hundruð látist í árásum Ísraela Erlent Samningur í höfn: „Búið að skemma ansi mikið fyrir okkur“ Innlent Fleiri fréttir Óvissu erlendra nemenda tímabundið eytt Aðgerðasinninn látinn laus en Hvíta húsið hyggst brottvísa Hátt í sjö hundruð látist í árásum Ísraela Takmarkið „enn sem komið er“ ekki að steypa klerkastjórninni af stóli Árásir halda áfram meðan fundað er í Genf Hyggst eftirláta á annað hundrað börnum sínum Telegram-auðinn Skrefi nær því að leyfa dauðvona fólki að leita sér dánaraðstoðar Sporvagni ekið inn í matarvagn í Gautaborg Danskur ráðherra kann ekki að meta auglýsingar Meta Hafnar tillögu um að verja fimm prósentum í varnamál Utanríkisráðherrar funda um Íran í Genf Frestar aftur TikTok-banni Kynnti sér mögulegar árásir: „Að klára verkið þýðir að rústa Fordo“ Áhlaup ICE og óvissan veldur vandræðum Farið í gegnum „kolefnisþakið“ eftir þrjú ár Sagði Khamenei „nútíma Hitler“ og að markmiðið sé að fella hann Geimskipið sprakk á jörðu niðri Finnar draga sig út úr sáttmála gegn jarðsprengjum Leita „fjandskapar“ á samfélagsmiðlum námsmanna Tala látinna í Kænugarði komin í tuttugu og átta Tugir særðir í Ísrael eftir árás Írana á spítala Vill ekki í stríð en segir klerkastjórnina ekki mega eignast kjarnorkuvopn Staðfesta bann á meðferð trans barna Óttast um líf fjölskyldu sinnar í Íran: „Ég sef ekki á nóttunni“ Fjórtán tonna sprengjan sem Ísraela vantar „Kannski geri ég það, kannski geri ég það ekki“ Færðu barn heiladauðrar konu í heiminn Rekja rafmagnsleysið á Íberíuskaga til mistaka orkufyrirtækja Íranir hóta „óbætanlegu tjóni“ skerist Bandaríkin í leikinn Sænsk „sorpdrottning“ hlaut þungan fangelsisdóm fyrir umhverfisbrot Sjá meira