Sýrlendingar lofa að opna efnavopnabúrin Guðsteinn Bjarnason skrifar 10. september 2013 21:30 John Kerry, utanríkisráðherra Bandríkjanna, á fundi hermálanefndar fulltrúadeildar Bandaríkjaþings í dag. Mynd/AP
Sýrlandsstjórn lofaði í dag að opna efnavopnabúr sín upp á gátt, veita alþjóðlegu vopnaeftirliti aðgang að þeim, hætta framleiðslu þeirra og undirrita jafnframt alþjóðasamning um bann við efnavopnum. Þessu fylgir að í fyllingu tímans verði sýrlensku efnavopnin eyðilögð. Ágreiningur er enn á milli bandarískra og rússneskra stjórnvalda um það, hvort í væntanlegri ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna eigi að felast hótanir um valdbeitingu standi Sýrlendingar ekki við þessi loforð. Rússar hafna slíku alfarið, en Bandaríkin vilja að í ályktuninni verði varnaglar sem tryggi að Sýrlandsstjórn standi við loforðin. Vladimír Pútín Rússlandsforseti sagði í dag að áætlun Rússa, sem Sýrlendingar hafa nú fallist á, geti einungis borið árangur ef Bandaríkin hafna öllum áformum um valdbeitingu. Á Bandaríkjaþingi hafa umræður haldið áfram í dag um hvort veita eigi Barack Obama forseta heimild til að ráðast á Sýrland. Frakkar hafa sömuleiðis haldið áfram að vinna að því að leggja harðorða ályktun um Sýrland fyrir öryggisráðið, þar sem Sýrlandsstjórn er sögð bera ábyrgð á notkun efnavopna. Enn er óvíst hvort Obama fær stuðning þingsins til árása. Bandarískur almenningur er samkvæmt skoðanakönnunum lítt hrifinn af þessum áformum og fá ríki hafa lýst áhuga á að slást í hópinn með Bandaríkjunum og Frökkum komi til árása gegn Sýrlandsstjórn.
Mest lesið Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Játar innbrot í búin Innlent Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Innlent Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Innlent Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Erlent „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Innlent Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Innlent Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Innlent Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Erlent „Við höldum í fjallarómantíkina“ Innlent Fleiri fréttir Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Sjá meira