Erlent

Sprengjan reyndist vera vísindatilraun

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Stórt svæði í kringum torgið var rýmt.
Stórt svæði í kringum torgið var rýmt. samsett mynd/afp
Bifreiðin við Kóngsins nýjatorg sem talin var innihalda sprengju reyndist vera vísindatilraun.

Stórt svæði í kringum torgið var rýmt vegna grunsamlegrar bifreiðar í bílageymslu, en vírar lágu úr rafgeymi fyrir aftan bílstjórasætið og ofan í hvítt ílát.

Haft var samband við skráðan eiganda bílsins, sem var á sænskum númerum, og í ljós kom að búnaðurinn var tilraun eigandans til að hlaða rafgeyminn í akstri.

Talsmaður lögreglunnar í Kaupmannahöfn telur að eigandi bifreiðarinnar verði ekki ákærður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×