Snowden lendir eftir klukkutíma 23. júní 2013 11:55 Ólíklegt þyki að uppljóstrarinn Edward Snowden komi hingað til lands. Hann lendir í Moskvu eftir um klukkustund. samsett mynd
Bandaríski uppljóstrarinn Edward Snowden er nú á leið frá Hong Kong til Moskvu um borð í rússneskri farþegaflugvél. Samtökin Wikileaks segjast vera Snowden innan handar og að búið sé að tryggja honum pólitískt hæli í lýðræðislegu ríki þaðan sem hann heldur líklega frá Moskvu. Bandarísk stjórnvöld gáfu á föstudaginn út ákæru á hendur Snowden fyrir njósnir og fóru þess á leit við stjórnvöld í Hong Kong að þau handtækju hann. Snowden hafði farið þar huldu höfði allt frá því að hann ljóstraði upp um stórfellt kerfisbundið eftirlit bandarískra stjórnvalda með síma- og netnotkun fjölda fólks. Yfirvöld í Hong Kong vildu ekkert gefa upp um það í gær hvort að orðið yrði við beiðni Bandaríkjamanna um að handtaka Snowden. Dagblaðið South China Morning Post greindi frá því að Snowden hefði eftir að handtökuskipunin var gefin út yfirgefið Hong Kong. Hann er nú á leið með rússneskri farþegaflugvél til Moskvu frá Hong Kong og á að lenda um eitt leytið að íslenskum tíma í Moskvu. Samtökin WikiLeaks greindu frá því á Twitter-síðu sinni að þau hafi aðstoðað Snowden við að koma sér á öruggan hátt frá Hong Kong og verið honum innan handar við að fá nauðsynlega pappíra til að geta ferðast. Þá hafi þau hjálpað honum við að tryggja sér pólitískt hæli í lýðræðislegu landi. Samtökin segja lögfræðiráðgjafa sína vera með Snowden í för. Talið er að Snowden dvelji aðeins í skamma stund í Moskvu. Ekkert hefur fengist uppgefið um hvert hann heldur þaðan Erlendir fréttamiðlar hafa leitt að því líkur að hann geti verið á leið til Ekvador, Kúbu, Venesúela eða jafnvel Íslands. Ólíklegt er talið að hann komi hingað til lands. Þannig sagði Ólafur Vignisson í samtali við fréttastofu að Snowden nýti sér ekki þotur sem að hópur tengdur WikiLeaks hafi tekið á leigu fyrir hann. Þá sagði Þórey Vilhjálmsdóttir aðstoðarkona innanríkisráðherra í samtali við fréttastofu að ráðuneytið hefði ekkert heyrt um það að hann kæmi hingað. Ráðherrann hefur sjálfur sagt að Snowden fái enga sérmeðferð hér á landi. Kristinn Hrafnsson, talsmaður WikiLeaks, hefur undanfarna daga dvalist í Ekvador. Þegar fréttastofa náði tali af honum í morgun gat hann ekkert gefið upp um áfangastað Snowdens að sagði að hann ætti von á að samtökin myndu greina frá því síðar í dag.Hér er hægt að fylgjast með flugvél Snowden í rauntíma.
Mest lesið Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Innlent Það er jóker í spilinu Innlent Sigurgeir þurfti að hætta og var fluttur á sjúkrahús Innlent Brotist inn í Barnaloppuna Innlent Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent „Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ Innlent Fjöldi ökumanna á von á kæru Innlent Kristján Kristjánsson kveður Sprengisand Innlent Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Erlent Páll Magnússon tekur við af Kristjáni Innlent Fleiri fréttir Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Sjá meira