Erlent

Dómur felldur yfir Manning

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Stuðningsmenn Mannings hafa víða efnt til mótmæla undanfarið.
Stuðningsmenn Mannings hafa víða efnt til mótmæla undanfarið. Nordicphotos/AFP
Herdómstóll í Bandaríkjunum hefur komist að niðurstöðu í máli uppljóstrarans Bradley Manning. Dómurinn verður birtur á morgun.

Manning hefur verið í fangelsi í þrjú ár. Hann á yfir höfði sér ævilangt fangelsi fyrir alvarlegasta ákæruatriðið, sem er að hafa aðstoðað óvini Bandaríkjanna.

Hann á einnig yfir höfði sér refsingu fyrir 20 önnur ákæruatriði, þar á meðal fyrir njósnir og þjófnað.

Manning er 25 ára. Hann hefur viðurkennt að hafa lekið hundruðum þúsunda leynilegra skjala meðan hann var hermaður í Írak.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×