Erlent

Buðust til að slökkva á Hawking

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Stephen Hawking er einn þekktasti eðlisfræðingur heims.
Stephen Hawking er einn þekktasti eðlisfræðingur heims. mynd/getty
Svissneskir læknar buðust til að slökkva á öndunarvél enska eðlisfræðingsins Stephen Hawking þegar hann fékk slæma lungnabólgu árið 1985. Þetta kemur fram í nýrri heimildamynd um þennan þekkta vísindamann sem frumsýnd verður í haust.

Fyrrverandi eiginkona Hawking, Jane, afþakkaði boð læknanna og krafðist þess að hann yrði fluttur til Englands. Í kjölfar veikindanna lauk Hawking við metsölubók sína, Sögu tímans, en hún er hans þekktasta verk.

Heimildamyndin verður frumsýnd á sama tíma og sjálfsævisaga Hawking kemur út, en í henni fjallar hann um einkalíf sitt, ástarsamböndin og fötlun sína á opinskáan máta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×