Erlent

Opna sendiráðin á ný

Bandaríkjastjórn hefur tilkynnt um að 18 af þeim 19 sendiráðum, sem lokað var vegna hryðjuverkahótana á dögunum, verði opnuð aftur á morgun. Sendiráð Bandaríkjana í borginni Saana í Jemen verður áfram lokað. Það sama á við um ræðismannsskrifstofuna í Lahore í Pakistan.

Skrifstofum í miðausturlöndum og Afríku var lokað 4. ágúst síðastliðinn vegna ótta við við árásir frá Al-Kaida hryðjuverkasömtökunum. Hættan var talin mest í Jemen og voru sendiráðsstarfsmenn og aðrir bandarískir ríkisborgarar beðnir um að yfigefa landið í kjölfar hótananna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×