Önnur kynslóð innflytjenda aðlagast betur dönsku samfélagi Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 12. september 2013 23:31 Pakistanar og fólk frá fyrrverandi ríkjum Júgóslavíu eiga best með að aðlagast dönsku samfélagi af þeim sem tóku þátt í rannsókninni. Mynd/vefur Politiken
Innflytjendur af annarri kynslóð í Danmörku hafa aðlagast dönskum lífsháttum betur en foreldrar þeirra. Ekki að það komi fræðimönnum sérlega á óvart en samkvæmt niðurstöðum í nýrri rannsókn sem Rockwool-rannsóknarsetrið gerði eru innflytjendur af annarri kynslóð mun líkari Dönum í lifnaðarháttum og hugsunargangi en búist var við. Rannsóknin var gerð meðal fólks sem átti ættir að rekja til Tyrklands, Pakistan, Líbanon, Íraks og fyrrverandi ríkjum Júgóslavíu. Meðal þess helsta sem kom fram í rannsókninni var að konur sem eru af annarri kynslóð innflytjenda ganga seinna í hjónaband og eignast seinna börn en mæður þeirra. Helsta ástæðan fyrir þessu er talin vera aukin menntun kvennanna. Einnig kemur í ljós að skilnaðartíðni afkomendanna er hærri en foreldranna. Skilnaðartíðnin er einnig hærri en hjá Dönum. Ástæðan fyrir því er talin vera sú að fólk frá þessum löndum er líklegra til að gifta sig áður en það hefur sambúð og eignast börn og því mögulega ekki búið að reyna nægilega vel á sambúðina áður en til hjónabands kemur. Einnig þykir þetta sýna að afkomendur innflytjenda séu orðnir áhættusæknari en foreldrarnir, og þannig farnir að líkjast meira Dönum í þeim málum. Jens Bonke, einn rannsakenda, segir að undarlegt væri ef önnur kynslóð innflytjenda væri ekki betur aðlöguð samfélaginu en foreldrarnir. „Því lengur sem maður er með öðrum í samfélagi, því meiri áhrif hefur það á mann. Maður tileinkar sér eðlilega þau gildi og þá hegðun sem maður lærir af umhverfinu," segir Jens Bonke í viðtali við Politiken. Tekið er fram í rannsókninni að það séu þó enn einstaklingar af báðum kynslóðum sem eigi erfitt með að aðlagast samfélaginu en þeir sem koma frá fyrrverandi ríkjum Júgóslavíu og Pakistan ná almennt að fóta sig best í dönsku samfélagi.
Mest lesið Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Játar innbrot í búin Innlent Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Innlent Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Innlent Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Erlent „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Innlent Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Innlent Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Innlent Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Erlent „Við höldum í fjallarómantíkina“ Innlent Fleiri fréttir Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Sjá meira