Erlent

Jurtaegg komin í búðir vestra

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Bill Gates
Bill Gates
Fyrstu eggin, sem búin eru til úr jurtum, eru nú komin í búðir í Bandaríkjunum. Hænur koma hvergi við sögu í framleiðsluferlinu.

Frumkvöðull að nafni Joshua Tetrick á hugmyndina og stofnaði fyrirtækið Beyond Eggs til að hrinda henni í framkvæmd.

Auðkýfingarnir Bill Gates og Peter Thiel hafa stutt þetta framtak dyggilega, og Gates hefur orðið einn helsti málsvari framleiðslunnar.

Útlitið er reyndar frábrugðið útliti alvöru eggja, en bragð og notagildi sagt óaðgreinanlegt frá frumgerðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×