Íhuga breytingar á 90.000 milljarða króna olíusjóði Þorgils Jónsson skrifar 12. september 2013 11:15 Norðmenn íhuga nú að breyta starfsemi olíusjóðsins. Hér er Statfjord A olíuborpallurinn í Norðursjó. NordicPhotos/AFP
Svo gæti farið að innan tíðar verði gerðar nokkrar breytingar á starfsemi norska olíusjóðsins, sem er stærsti fjárfestingasjóður heims í ríkiseigu. Forsvarsmenn flokkanna sem eru líklegastir til að fara fyrir nýrri ríkisstjórn, Hægri flokksins og Framfaraflokksins, hafa lýst yfir áformum um að skipta sjóðunum upp og auka heimildir hans til fjárfestinga innan lands sem utan.Sjóðurinn situr nú á eignum að verðmæti rúmlega 90.000 milljarða íslenskra króna og í hverri viku bætast um það bil 120 milljarðar í púkkið vegna ágóða af olíu- og gasvinnslu. Sjóðurinn á hlut í 7.500 fyrirtækjum um allan heim, en hlutabréfaeign hans jafngildir um það bil einu prósenti af öllum hlutabréfum heims og tveimur prósentum af öllum hlutabréfum í Evrópu. Þrátt fyrir góða stöðu sjóðsins eru margir á því að breytinga sé þörf. Bruno Gerard, prófessor við Viðskiptaháskólann í Osló, segir til að mynda í samtali við BBC að ómögulegt sé, miðað við fjárstreymið í sjóðinn, að stýra honum sem einni einingu. Því verði að gera breytingar á honum.„Honum er vel stjórnað núna, en smávægileg mistök í svo stórum sjóði geta haft gríðarlegar afleiðingar. Það væri hægt að vega upp á móti þessari áhættu með því að hafa fleiri, minni sjóði.” Ketil Solvik-Olsen, talsmaður Framfaraflokksins í fjármálum, segir í samtali við Reuters að þeirra hugmyndir lúti að því að kljúfa þrjá minni sjóði í burtu, sem muni haf umsjón með um það bil einum níunda af heildarfjármunum sjóðsins. Þeir muni svo sérhæfa sig þar sem einn muni ef til vill einbeita sér að grænni orku, og annar að þróunaraðstoð.Erna Solberg, sem mun að öllum líkindum verð næsti forsætisráðherra Noregs, hefur gefið til kynna að skipting sjóðsins komi til greina, en Gerard segir að miðað við hvernig umræðan hefur þróast sé aðeins tímaspursmál hvenær slíkt verður gert. Annað atriði sem komið hefur til tals að breyta er fjárfestingastefna sjóðsins. Hingað til hefur hann aðeins fjárfest í erlendum fyrirtækjum, verðbréfum og fasteignum, en flokkarnir á hægri kantinum hafa verið opnir fyrir að leggja fjármuni í erlenda framtakssjóði og fjárfesta í innviðum erlendis, til að auka framlegð sjóðsins, sem hefur verið takmörkuð. Til dæmis kemur fram í úttekt BBC að ágóðinn af fjárfestingum hafi einungis numið um 0,1 prósenti á öðrum ársfjórðungi. Síðast en ekki síst eru skiptar skoðanir um ráðstöfun olíufjármuna innanlands í Noregi. Sem stendur má að hámarki verja fjórum prósentum af sjóðnum á fjárlögum hvers árs, til að koma í veg fyrir ofþenslu í hagkerfinu, en Framfaraflokkurinn hefur talað fyrir því að hækka það mark og fjárfesta í innviðum Noregs. Raunar þyrfti ekki að hækka markið þar sem Rauðgræna ríkisstjórn Jens Stoltenbergs hefur ekki einu sinni fullnýtt heimild sína og rúmir 600 milljarðar eru ónýttir á þessu ári. Málefni olíusjóðsins verða án efa eitt af stærstu pólitísku málefnunum í Noregi á komandi misserum, en búist er við því að innan áratugs verði sjóðurinn orðinn á við tvöfalda landsframleiðslu Noregs. Ósennilegt er hins vegar að rótttækar breytingar verði gerðar þar sem flokkarnir virðast einhuga um að ná samstöðu um framtíðarskipan sjóðsins.
Mest lesið Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Játar innbrot í búin Innlent Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Innlent Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Innlent Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Erlent „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Innlent Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Innlent Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Innlent Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Erlent „Við höldum í fjallarómantíkina“ Innlent Fleiri fréttir Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Sjá meira