Regnhlífarmorðið fyrnt í Búlgaríu Guðsteinn Bjarnason skrifar 12. september 2013 12:30 Minningarathöfn var haldin í gær í Búlgaríu um Georgí Markov, þegar 35 ár voru liðin frá láti hans. Nordicphotos/AFP
Sotir Tsatsarov, aðalsaksóknari Búlgaríu, segir að óupplýst morð á Georgí Markov í London árið 1978 verði ekki rannsakað frekar. Málið sé fyrnt samkvæmt búlgörskum lögum vegna þess að nú séu 35 ár liðin. Markov var búlgarskur blaðamaður og andófsmaður, sem flúði land árið 1969. Þann 7. september árið 1978 stóð hann við strætisvagnastöð á Waterloo-brúnni í London. Hann var á leiðinni í vinnu sína á Búlgaríudeild breska útvarpsins BBC. Maður með regnhlíf kom þar að og stakk hann í lærið með eitruðum broddi regnhlífarinnar. Markov fann fyrir smá sting í aftanverðu hægra læri sínu, en hélt síðan í vinnuna eins og ekkert hefði í skorist. Fjórum dögum síðar, þann 11. september, var hann látinn. Grunur féll fljótt á búlgörsku leyniþjónustuna, en enginn hefur verið handtekinn eða ákærður vegna morðsins. Mikið hefur verið fjallað um þetta morð í fjölmiðlum. Búlgarska leyniþjónustan er sögð hafa áður gert tvær tilraunir til að myrða Markov, en það heppnaðist ekki fyrr en í þriðju tilrauninni. Leyniþjónustumaður að nafni Francesco Gullino hefur verið nefndur til sögunnar sem hugsanlegur morðingi Markovs. Samkvæmt breskum lögum fyrnast morð ekki, og Tsatsarov segist reiðubúinn til að veita bresku lögreglunni alla aðstoð, verði málið rannsakað áfram þar.
Mest lesið Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Innlent Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Erlent Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Innlent Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Erlent Pallaball fram á rauðanótt: „Farðu og finndu fólkið þitt!“ Innlent Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Innlent Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Erlent Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Innlent Alelda bíll á Emstruleið Innlent Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Innlent Fleiri fréttir Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Mexíkó hafnar aftur hermönnum Trumps „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Skotárás á Times Square Nyrsta olíuvinnslusvæði Noregs formlega opnað Eldur kviknaði í sögufrægri dómkirkju Gefur ekkert landsvæði eftir Aserar og Armenar skrefi nær friði eftir sögulegan fund í Hvíta húsinu Geimfari Apollo 13 látinn Trump og Pútín funda í Alaska næsta föstudag Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Ákvörðun öryggisráðsins til marks um enn frekari stigmögnun Skipar hernum í hart við glæpasamtök Stefni á tilraun með kjarnorkuknúna eldflaug á norðurslóðum Fann hagtölur sem honum líkar og hélt óvæntan blaðamannafund Skýrasta myndin af halastjörnunni, eða vopninu, hingað til Sakaði „sveppamorðingjann“ um að hafa eitrað fyrir sér í þrígang Rússar enn að fá „samstöðustyrki“ en Úkraínumenn ekki Sektaður fyrir að aka á 321 kílómetra hraða Keppa við Kínverja og Rússa um að koma kjarnakljúfi til tunglsins Öryggisráðið ákveður að taka yfir Gasa-borg Mun funda með Pútín þó fundur með Selenskí sé hvergi í sjónmáli Flokkurinn fyrir sjálfstætt Austur-Grænland: „Flug til Íslands allt árið!“ Demókratar setja sig í stellingar fyrir forsetaframboð Neitar að hitta Pútín án Selenskís Grönduðu flugvél frá furstadæmunum og felldu fjörutíu málaliða Geislasverð Svarthöfða til sölu Liðþjálfi skaut fimm aðra hermenn Sjá meira