Erlent

Ákærðir fyrir að nauðga 12 ára stúlku

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
mynd/google street view
Tveir 17 ára piltar hafa verið ákærðir fyrir að nauðga 12 ára stúlku í Lundúnum.

Árásin átti sér stað í hverfinu Walthamstow í austurhluta borgarinnar þann 27. júlí og var stúlkan lokkuð að bílskúr þar sem  þrír menn réðust á hana.

Stúlkunni var haldið niðri og tveir af mönnunum þremur nauðguðu henni. Mennirnir höfðu sig á brott eftir að stúlkan náði að gera vinkonu sinni viðvart símleiðis, en að sögn rannsóknarlögreglumannsins Simon Ellershaw var árásin sérlega hrottafengin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×