Vísbendingar fundust um að efnavopnum hafi verið beitt Þorgils Jónsson skrifar 28. ágúst 2013 12:12 Sönnungargögn á vettvangi loftárásanna í Damaskus gefa til kynna að þar hafi verið notast við efnavopn. Þetta sagði Lakhdar Brahimi, sendifulltrúi Sameinuðu þjóðanna gagnvart Sýrlandi, á blaðamannafundi í morgun. Mynd/AP
Sönnungargögn á vettvangi loftárásanna í Damaskus gefa til kynna að þar hafi verið notast við efnavopn. Þetta sagði Lakhdar Brahimi, sendifulltrúi Sameinuðu þjóðanna gagnvart Sýrlandi, á blaðamannafundi í morgun. „Svo virðist sem einhvers konar efni hafi verið notað, sem olli dauða fjölmargra. Hundruða, alla vegana fleiri en eitt hundrað. Sumir vilja meina að það hafi verið 300 manns, aðrir 600 eða jafnvel 1.000," sagði hann. Brahimi tjáði sig ekki frekar um hvort hann byggði mat sitt á gögnum frá rannsóknarteymi Sameinuðu Þjóðanna sem er nú að störfum í Sýrlandi, eða frá öðrum aðilum, til dæmis Bandaríkjunum, sem John Kerry utanríkisráðherra sagði að byggju yfir „óhrekjandi" sönnunargögnum um að umhafi verið að ræað meirháttar efnavopnaárás, sem stjórnarherinn beri sennilega ábyrgð á. Brahimi undirstrikaði einnig að hernaðaríhlutun þurfi fyrst að samþykkja í Öryggisráðinu. Til að öryggisráðið samþykki aðgerðir þarf samþykki allra fimm landa sem eiga þar fastafulltrúa en líklegt þykir að Kína og Rússland muni beita neitunarvaldi gegn ályktunum um aðgerðir. Kínverjar og Rússar hafa meðal annars líkt framvindu mála nú við aðdragandann að Íraksstríðinu. Ban Ki Moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna biðlaði í morgun til alþjóðsamfélagsins um að friðsamleg lausn verði fundin í málefnum sýrlands. Nú bendir margt til þess að vesturveldin séu að stefna að beinni íhlutun í borgarastyrjöldina í Sýrlandi í kjölfar fyrrnefndrar efnavopnaárásar. Ban sagði að rannsóknarteymi Sameinuðu þjóðanna, sem nú væri að störfum á vettvangi, þyrfti tíma til að ljúka störfum áður en gripið verði til aðgerða. Bretar ætla í dag að leggja fram ályktun í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna þar sem efnavopnaárásirrnar eru fordæmdar. Samkvæmt yfirlýsingu frá David Cameron forsætisráðherra Bretlands, munu þeir þrýsta á um að gripið verði til nauðsynlegra aðgerðra til þess að verja óbreytta borgara í Sýrlandi.
Mest lesið Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Erlent Fleiri fréttir Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Sjá meira