Bróðir Assads sagður standa á bak við efnavopnaárásina Guðsteinn Bjarnason skrifar 28. ágúst 2013 18:00 Bræðurnir Maher og Bashar al Assad. Nordicphotos/AFP
Maher al Assad er yngri bróðir Bashars Sýrlandsforseta. Báðir eru alræmdir en Maher sagður hálfu verri. Hann er nú sakaður um að hafa gefið skipun um að beita efnavopnum í úthverfum Damaskusborgar í síðustu viku. Þetta hefur fréttavefurinn Bloomberg eftir ónafngreindum starfsmanni Sameinuðu þjóðanna. Sá er sagður starfa við eftirlit með stríðsátökum í þessum heimshluta. Maher stjórnar sérsveitum hersins, bæði Lýðveldisvörðunum svonefndu og fjórðu vopnadeildinni, en hún er sögð hafa gert árásina í Damaskus þann 21. ágúst. Heimildarmaður Bloombergs segir mögulegt að forsetinn sjálfur hafi ekki átt neinn hlut að ákvörðun yngri bróður síns um notkun efnavopna. Allt eru þetta getgátur, en gætu skipt máli í framhaldinu fari svo að Bandaríkin og fleiri ríki á Vesturlöndum ákveði að gera loftárásir á Sýrland. Bashar forseti hafði lengst af forsetaferli sínum þá ímynd að þar færi hófsamur maður, menntaður á Vesturlöndum og áhugasamur um velferð þjóðar sinnar. Yngri bróðurnum var aftur á móti frá upphafi fengið það hlutverk að sinna óvinsælli verkefnum, stjórna hernum af miskunnarleysi og gæta þess að engir veikleikar verði veldi fjölskyldunnar að falli. Almenningur í Sýrlandi er sagður sannfærður um að Maher sé sá sem ráði mestu um hörkuna, sem stjórnarherinn hefur sýnt gagnvart uppreisnarmönnum undanfarin misseri.
Mest lesið Veita útlendingum greiðari aðgang að heilbrigðiskerfinu en er skylt Innlent Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Erlent „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Innlent Þrjú hjólhýsi „splundruðust“ á Holtavörðuheiðinni Innlent Talsverðar skemmdir eftir mikinn eld í Hafnarfirði Innlent Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Erlent Sekta Símann fyrir að auglýsa erlenda veðmálasíðu Innlent Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Erlent Foreldrar verði að halda ró sinni þegar kynferðisbrot eru rædd við börn Innlent Öskurrifust við leigubílstjóra: „Farið til helvítis, þið munuð borga mér“ Innlent Fleiri fréttir Selenskí mun funda með Trump Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Forsetarnir tveir funda Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Maður látinn eftir skotárás við mosku í Örebro Obama blæs Demókrötum byr í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Samþykkti landtökubyggð til að fyrirbyggja palestínskt ríki Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Sendu tvö herskip að umdeildu rifi eftir ásiglingu Kínverja Sprengingar eftir eldingu Rússar helsta ógnin sem Norðmenn standi frammi fyrir Kýrskýrt að aðeins Selenskíj geti samið um landsvæði Blaðamenn drepnir í tugatali: Banvænt mynstur misræmis og mótsagna Sjá meira