Líkkista til sölu - beinagrind fylgir Heimir Már Pétursson skrifar 24. júní 2013 08:20
Lögregla í bænum Council Bluffs í Iowa í Bandaríkjunum rannsakar allt óvenjulegt beinamál. Dave Burgstrum auglýsti á Craigslist á fimmtudaginn í síðustu viku líkkistu til sölu með innihaldi sem kæmi á óvart og vildi fá 12.000 dollara, eða um 1,4 milljónir króna fyrir. Andvirðið átti að nota til að greiða skuldir og skatta Odd Fellow-reglunnar í bænum sem er gjaldþrota. En kistan hafði verið í eigu félagasamtakanna um langa hríð. Burgstrum sagði í auglýsingunni á Craigslist að kistan væri í góðu ásigkomulagi, með bronshöldum og silkuklæðningu að innan. En sá hængur er á málinu að það er ónafngreind beinagrind í kistunni og af þeim sökum gripu lögregluyfirvöld inn í, þar sem það er í bága við lög að selja líkamsleyfar ef ekki er búið að greina af hverjum þær eru. Kistan hafði verið notuð við athafnir hjá Odd Fellow-reglunni í bænum lengur en elstu menn muna. Burgstrum segir að samkvæmt bókum reglunnar hafi læknir nokkur gefið reglunni beinagrindina einhvern tíma upp úr árinu 1880. Beinin hafa verið send á rannsóknarstofu fylkislögreglunnar í Iowa en ólíklegt þykir að kennsl verði borin á þann einstakling sem þau tilheyrðu. Burgstrum er hins vegar staðráðinn í að selja kistuna til að safna fé upp í skuldir samtakanna, sem eru aðallega skattaskuldir.
Mest lesið Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Innlent Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Innlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent Fleiri fréttir Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Sjá meira