Erlent

Menn pyntaðir og myrtir í Kaíró

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Stuðningsmaður Morsi blóðugur eftir átök við löggæslumenn sem hefur verið fyrirskipað að tvístra sitjandi mótmælum stuðningsmanna.
Stuðningsmaður Morsi blóðugur eftir átök við löggæslumenn sem hefur verið fyrirskipað að tvístra sitjandi mótmælum stuðningsmanna. Mynd/AP
Um tugur líka hefur fundist í Kaíró nálægt stöðum þar sem fram fara sitjandi fjöldamótmæli stuðningsmanna fyrrverandi forseta Egyptalands, Mohammeds Morsi. Í fjölmiðlum eru stuðningsmennirnir ásakaðir um að hafa myrt andstæðinga sína.

Amnesty International í London kveðst hafa vitnisburð sjónarvotta fyrir því að stuðningsmenn Morsis hafi pyntað andstæðinga sína.

Stuðningsmennirnir neita því að hafa pyntað nokkurn mann. Engar myndbandsupptökur hafi náðst af pyntingum eða árásum stuðningsmannanna.

Í fjölmiðlum hafa birst annars konar ásakanir á hendur mótmælendunum, að þeir séu ekki raunverulegir Egyptar og að þeir séu upp til hópa börn sem safnað hafi verið saman frá munaðarleysingjahælum.

Af þessum ástæðum eiga margir erfitt með að treysta ásökunum um pyntingar og morð þar sem þær virðast vera liður í beinni áróðursstarfsemi.

En þó leggja andstæðingar Morsis, sem eru í miklum meirihluta í Kaíró, trúnað á ásakanirnar en mannréttindahópar á borð við Amnesty segja sterk sönnunargögn liggja fyrir. Hefur það valdið því að enn meiri þrýstingur er á stjórnvöld að tvístra hópum stuðningsmanna Morsis sem stunda sitjandi mótmæli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×