Erlent

Hæstaréttardómari gefur saman samkynhneigt par

Hæstiréttur Bandaríkjanna úrskurðaði fyrir ekki svo löngu að hjónabönd samkynhneigðra væri lögleg.
Hæstiréttur Bandaríkjanna úrskurðaði fyrir ekki svo löngu að hjónabönd samkynhneigðra væri lögleg.
Hin áttræða Ruth Bader Ginsburg verður í dag fyrst Hæstaréttardómara í Bandaríkjunum til að gefa saman samkynhneigt par, en hún var ein þeirra sem lagði blessun sína yfir hjónabönd samkynhneigðra í úrskurði sem féll í Hæstarétti landsins í júní á þessu ári.

Að því er kemur fram á heimsíðu Washington Post fer giftingin fram þar í borg og verður það Michael M. Kaiser, forseti Kennedy-listamiðstöðvarinnar í Washington sem gengur að eiga unnusta sinn John Roberts.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×