Olíusjóðnum jafnvel skipt upp Þorgils Jónsson skrifar 16. september 2013 07:00 Gas- og olíuvinnsla hefur skilað Norðmönnum fúlgum fjár en olíusjóðurinn er nú svo stór að hugmyndir eru uppi um breytingar á starfsemi hans. Nordicphotos/AFP
Svo gæti farið að innan tíðar verði gerðar nokkrar breytingar á starfsemi norska olíusjóðsins, sem er stærsti fjárfestingasjóður heims í ríkiseigu. Forsvarsmenn flokkanna sem eru líklegastir til að fara fyrir nýrri ríkisstjórn, Hægri flokksins og Framfaraflokksins, hafa lýst yfir áformum um að skipta sjóðunum upp og auka heimildir hans til fjárfestinga innan lands sem utan. Sjóðurinn situr nú á eignum að verðmæti rúmlega 90.000 milljarða íslenskra króna og í hverri viku bætast um það bil 120 milljarðar í púkkið vegna ágóða af olíu- og gasvinnslu. Sjóðurinn á hlut í 7.500 fyrirtækjum um allan heim en hlutabréfaeign hans jafngildir um það bil einu prósenti af öllum hlutabréfum heims og tveimur prósentum af öllum hlutabréfum í Evrópu. Þrátt fyrir góða stöðu sjóðsins eru margir á því að breytinga sé þörf. Til að mynda eru uppi hugmyndir um að kljúfa frá honum hluta sem yrði skipt í þrjá aðra sjóði. Þá yrði fjárfestingarmöguleikum sjóðsins fjölgað og jafnvel auknar heimildir ríkisins til að ráðstafa fé úr sjóðnum innanlands. Málefni olíusjóðsins verða án efa eitt af stærstu pólitísku málefnunum í Noregi á komandi misserum. Ósennilegt er þó að róttækar breytingar verði gerðar þar sem norsku flokkarnir virðast einhuga um að ná samstöðu um framtíðarskipan sjóðsins.
Mest lesið Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Játar innbrot í búin Innlent Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Innlent Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Erlent Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Innlent „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Innlent Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Innlent Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Innlent Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Erlent „Við höldum í fjallarómantíkina“ Innlent Fleiri fréttir Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Sjá meira