Nefndin segir sarín hafa verið notað á almenna borgara Guðsteinn Bjarnason skrifar 16. september 2013 13:15 Åke Sellström afhendir Ban Ki-moon efnavopnaskýrsluna. Nordicphotos/AFP
Rannsóknarteymi frá Sameinuðu þjóðunum, sem dvaldist í Sýrlandi nýverið og aflaði gagna á vettvangi í úthverfum Damaskusborgar, segist hafa í höndunum sannfærandi gögn um að efnavopn hafi í raun verið notuð þar þann 21. ágúst. Bandaríska fréttastofan AP fullyrðir þetta, og vitnar í skýrslu nefndarinnar. Þar segir að „umhverfissýni, efnafræðileg sýni og læknisfræðileg sýni sem við söfnuðum eru skýr og sannfærandi sönnunargögn þess að flugskeytum með eiturefninu sarín var skotið á Ghouta-hverfið í Damaskus.” „Niðurstaðan er sú að efnavopnum hefur verið beitt í yfirstandandi átökum í Sýrlandi ... gegn almennum borgurum, þar á meðal börnum í nokkuð miklum mæli,” segir ennfremur á fyrstu blaðsíðu skýrslunnar. Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, mun síðar í dag kynna betur niðurstöður nefndarinnar, eftir að hafa rætt þær á lokuðum fundi í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Åke Sellström, hinn sænski formaður rannsóknarnefndarinnar, afhenti Ban skýrslu nefndarinnar í gær. Önnur nefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna, sem hefur það verkefni að grafa upp staðreyndir um stríðsglæpi í átökunum í Sýrlandi undanfarið, er nú að skoða fjórtán dæmi þess að efnavopn hafi verið notuð þar í landi. Paulo Sergio Pinheiro, formaður þeirrar nefndar, tók fram í morgun að mikill meirihluti allra dauðsfalla í sýrlensku borgarastyrjöldinni megi rekja til notkunar hefðbundinna vopna.
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Bardagabúr rís við Hvíta húsið Erlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Innlent Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Erlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Innlent Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Innlent Fleiri fréttir Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Sjá meira