Þreifingar um stjórnarmyndun í Þýskalandi komnar á fullt Þorgils Jónsson skrifar 5. október 2013 07:00 Angela Merkel kanslari mun að öllum líkindum stýra Þýskalandi næstu fjögur ár, þriðja kjörtímabilið í röð. Hún sést hér á leið til fundarins í gær. Mynd/AP
Angela Merkel, kanslari Þýskalands, og flokkur hennar, Kristilegir demókratar, hófu í gær könnunarviðræður við Jafnaðarmannaflokkinn um myndun nýrrar ríkisstjórnar.Jafnaðarmenn sjást hér mæta til viðræðnanna í gær. Peer Steinbrück, sem er lengst til vinstri, sagði af sér formennsku eftir að flokknum gekkekki sem skildií kosningunum.Mynd/APMerkel vann stórsigur í nýafstöðnum kosningum þar sem flokkur hennar var fimm þingsætum frá því að ná hreinum meirihluta á þingi. Samstarfsflokkur hennar í ríkisstjórn, Frjálsir demókratar, féll út af þingi. Jafnaðarmenn hlutu rúman fjórðung atkvæða. Hermann Gröhe, aðalritari Kristilegra demókrata, sagði í gær að andrúmsloftið á fundinum hefði verið „gott og uppbyggilegt“ og að næst yrði fundað hinn 14. þessa mánaðar. Gröhe sagði að á fundinum hefði aðallega verið litið til málaflokka þar sem flokkarnir ættu samleið en ekki þeirra þar sem ósættis væri að vænta. Peer Steinbrück, sem var kanslaraefni Jafnaðarmanna en steig til hliðar eftir kosningarnar, kallaði meðal annars í kosningabaráttunni eftir lögbundnum lágmarkslaunum og hærri sköttum á hátekjufólk. Merkel og flokkur hennar höfnuðu hins vegar slíkum hugmyndum. Nái flokkarnir saman hefði stjórn þeirra afar traustan meirihluta á þingi en margir innan Jafnaðarmannaflokksins eru fullir efasemda um slíkt samstarf, enda kom flokkurinn illa út úr kosningum eftir samsteypustjórn sömu flokka á árunum 2005 til 2009. Í síðustu viku lofuðu forvígismenn jafnaðarmanna að bera samstarfið undir flokksmenn, sem telja tæplega hálfa milljón. Ef upp úr slitnar hafa Merkel og Kristilegir demókratar hins vegar valkost um að ganga til samstarfs með Græningjaflokknum sem hlaut 8,4 prósent atkvæða, þeim til mikilla vonbrigða. Könnunarviðræður milli flokkanna fara fram næstkomandi fimmtudag. Frekar ólíklegt þykir þó að flokkarnir nái saman, enda standa þeir ansi fjarri hvor öðrum í mörgum lykilmálaflokkum. „Við stefnum að því að komast að niðurstöðu sem fyrst því að það er ljóst að stjórnarmyndunarviðræður munu taka nokkurn tíma,“ sagði Gröhe. „Við ætlum að vanda okkur við þetta en áttum okkur á því að þjóðin bíður eftir því að málin skýrist.“
Mest lesið Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Játar innbrot í búin Innlent Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Innlent Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Erlent „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Innlent Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Innlent Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Innlent Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Erlent „Við höldum í fjallarómantíkina“ Innlent Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Innlent Fleiri fréttir Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Krefst þess með hástöfum að stýrivextir verði lækkaðir Nær hundrað prósent líkur á sigri vinstri blokkarinnar Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Hútar skutu niður herþotu Sáda Ný réttarhöld gætu reynst flókin í framkvæmd Afhjúpa RIS-vanda í Evrópu og Bandaríkjunum Býður Kanada aukaaðild að Evrópusambandinu Fréttaþyrla NBC hrapaði í Los Angeles Áfram gengur að stoppa upp í ósongatið Loka Kennedy-miðstöðinni eftir að Trump fékk ekki nafn sitt á bygginguna Myndu rústa Póllandi á tveimur til þremur dögum Skutu vegna „ögrandi hegðunar“ dönsku herþyrlunnar Sjá meira
Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Innlent
Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Innlent