Erlent

Misnotaði sofandi konu í flugvél

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Aksal á yfir höfði sér 250 þúsund dala sekt og allt að ævilangt fangelsi.
Aksal á yfir höfði sér 250 þúsund dala sekt og allt að ævilangt fangelsi. samsett mynd/afp
Bandarískur karlmaður var í gær fundinn sekur um kynferðisbrot í innanlandsflugi, en hann misnotaði sofandi konu í sætinu við hliðina á honum.

Bawer Aksal, sem 49 ára frá New Jersey, var sakfelldur í tveimur ákæruliðum fyrir kynferðisbrot gegn konunni, en brotin áttu sér stað í flugi United Airlines-flugfélagsins frá Phoenix til Newark í fyrra.

Konan, sem sat í gluggasæti, vaknaði við það að Aksal var kominn með höndina inn á nærbuxur hennar og leitaði hún strax aðstoðar frá flugþjónum. Farþegi sem sat í sömu röð varð vitni að atburðinum og staðfesti sögu konunnar.

Málið er alríkismál þar sem brotið átti sér stað í flugi, og tilheyrir þá ekki umdæmi sérstakra fylkja. Aksal á yfir höfði sér 250 þúsund dala sekt og allt að ævilangt fangelsi, en refsing hans verður ákveðin í október.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×