Erlent

Sprenging á flugvellinum í Peking

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Myndir úr öryggismyndavél sýna Zhongxing sitja í hjólastól og veifa hvítum pakka rétt áður en sprengingin varð.
Myndir úr öryggismyndavél sýna Zhongxing sitja í hjólastól og veifa hvítum pakka rétt áður en sprengingin varð.
Sprengja sprakk á alþjóðaflugvellinum í Peking, höfuðborg Kína, í morgun.

Lögregla og sjúkralið voru kölluð til og var sprengjumaðurinn, Ji Zhongxing, fluttur á sjúkrahús en ekki hefur verið greint frá alvarleika meiðsla hans.

Mikill reykur var í flugstöðinni eftir sprenginguna en engin slys urðu á nærstöddum. Sprengjan er sögð hafa verið heimagerð og innihaldið flugeldapúður. Myndir úr öryggismyndavél sýna Zhongxing sitja í hjólastól og veifa hvítum pakka rétt áður en sprengingin varð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×