Erlent

Höfuðið festist í framrúðunni

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
mynd/the sun
Hún var stálheppin, konan sem lenti í árekstri á hraðbraut í Guizhou-héraði í Kína á miðvikudaginn.

Hún var farþegi í sendiferðabíl sem keyrði aftan á flutningabíl, og sat hún með höfuð sitt fast í framrúðunni þegar lögregla og sjúkraflutningamenn komu á staðinn. Konan var beltislaus og þurfti að skera stærra gat á rúðuna til þess að losa hana.

mynd/the sun
Ökumaðurinn var meðvitundarlaus og bæði voru þau flutt á sjúkrahús til aðhlynningar, en eru sögð á batavegi. Myndirnar eru vissulega óhuggulegar, en betur fór en á horfðist í þetta skiptið.

mynd/the sun



Fleiri fréttir

Sjá meira


×