Erlent

Myrti þrjá í Noregi

Mynd/AFP
Maður um þrítugt myrti þrjár manneskjur um borð í rútu sem var á leið á milli norsku bæjanna Ardal og Tyin í Sognsfirði  í vesturhluta landsins um kvöldmatarleitið í gær. Þau sem létust voru nítján ára gömul stúlka og tveir menn á sextugsaldri og var annar þeirra rútubílstjórinn og hinn sænskur ríkisborgari.

Ekkert er enn vitað um ástæður árásarinnar en sumir miðlar tala um að maðurinn hafi ætlað að taka farþega rútunnar í gíslingu. Slökkviliðsmenn sem voru fyrstir á staðinn náðu að yfirbuga manninn og halda honum uns lögreglu bar að garði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×