Skutu 26 ára fréttakonu til bana í Sýrlandi Birgir Þór Harðarson skrifar 28. maí 2013 10:30 Stjórnarhermenn handjárnuðu og bundu fyrir augu þessara stríðsfanga í Qusayr í Sýrlandi. nordicphotos/afp
26 ára gömul sýrlensk fréttakona lést og tveir starfsbræður hennar særðust í skotárás í Sýrlandi í gær. Fréttakonan var að fjalla um átökin í heimalandi sínu þegar þau urðu fyrir árásinni. Hún starfaði fyrir sýrlenska sjónvarpsstöð í ríkiseigu en stjórnvöld þar í landi segja uppreisnarmenn hafa staðið að árásinni. Fréttakonan Yara Abbas var að fjalla um árás sýrlenska stjórnarhersins og líbanskra Hezbolla-liða á Qusayr, hernaðarlega mikilvægan bæ við landamæri Sýrlands og Líbanon, þegar ráðist var á fréttateymið. Fréttir ríkisrekinnar sjónvarpsstöðvar herma að setið hafi verið fyrir þeim þegar þau óku inn á svæðið. Orrusta um þetta svæði í norðurhluta landsins hefur staðið í rúma viku og hefur stjórnarliðum orðið nokkuð ágengt gegn uppreisnarmönnum sem hafa ráðið yfir svæðinu. Síðan styrjöldin hófst í Sýrlandi í mars 2011 hafa tugir frétta- og blaðafólks fallið. Alls hafa meira en 70.000 manns fallið í styrjöldinni, samkvæmt heimildum Sameinuðu þjóðanna. Þá virðist fréttafólk vera í síaukinni hættu á að vera rænt í Sýrlandi. Mannréttindasamtökin Amnesty International hafa jafnvel sagt að sérstaklega mikil hætta steðji að blaðamönnum frá báðum aðilum átakanna. Í ágúst í fyrra var hópi sjónvarpsmanna rænt af uppreisnarmönnum og þeir síðar frelsaðir af stjórnarliðum. Í desember var bandarískur sjónvarpsmaður í haldi stjórnarliða en slapp eftir skotbardaga við ræningja sína. Þá hefur James Foley, bandarísks blaðamanns á vegum franskrar fréttastofu, verið saknað síðan í haust, en síðast sást til hans í Sýrlandi.
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Orbán hættir á þingi Erlent Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Erlent Fleiri fréttir Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Sjá meira